ÁSKIRKJA

Kór og tónlist

Kór og tónlistarstarf

Kirkjukór Áskirkju var stofnaður 5. febrúar 1965, en hafði þó sungið við athafnir frá því fyrir jól 1964. Fyrsti organisti safnaðarins var Steingrímur Sigfússon og einnig gegndi Guðjón Guðjónsson starfi organista í stuttan tíma. Í mars 1965 tók Kristján Sigtryggsson við starfi organista og leiddi hann starf kórsins í liðlega 36 ár eða fram til nóvember árið 2001.

Kór Áskirkju var stofnaður í núverandi mynd haustið 2001 þegar Kári Þormar kom til starfa sem organisti kirkjunnar. Í kórnum eru um 20 tónlistarmenntaðir söngvarar sem hafa flestir verið með frá upphafi. Kórinn æfir einu sinni í viku og tekur þátt í messu- og hátíðarhaldi kirkjunnar. Einnig hefur kórinn sungið við hátíðleg tækifæri í tengslum við safnaðarstarfið. Einnig hefur kórinn haldið tónleika á Akureyri, í Mývatnssveit og á Eskifirði.
Starf kórsins hefur verið með miklum blóma og hefur hann haldið að minnsta kosti tvenna tónleika á ári við góðan orðstír. Að jafnaði hafa einsöngshlutverk verið í höndum kórfélaga. Á meðal stærri verka á efnisskrá kórsins má telja Gloriu í D-dúr eftir Vivaldi, Missa Brevis eftir Mozart, jólaóratóríu eftir Saint-Saëns, Requiem eftir Fauré, messu í G-dúr eftir Poulenc, orgelmessu eftir Flor Peeters, Maríumúsík eftir Anders Öhrwall, Jóhannesarpassíuna eftir Bach og Sköpunina eftir Haydn með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Að auki hefur kórinn flutt ýmis smærri tónverk, íslensk og erlend, bæði af kirkjulegum og veraldlegum uppruna, þjóðlög og fleira. Árið 2004 gaf kórinn út geisladiskinn Það er óskaland íslenskt þar sem flutt voru íslensk ættjarðarlög og um jólin 2008 kom út geisladiskurinn Það aldin út er sprungið og fengu báðir diskarnir mjög góðar viðtökur.


Magnús Ragnarsson stundaði píanónám frá barnsaldri, m.a. hjá Jónasi Ingimundarsyni og Guðríði St. Sigurðardóttur. Haustið 1999 hóf hann orgelnám í Tónskóla þjóðkirkjunnar hjá Kára Þormar og tveimur árum síðar hlaut hann inngöngu í kirkjutónlistardeild Tónlistarháskólans í Gautaborg þar sem hann stundaði orgelnám hjá Karin Nelson, söngnám hjá Gunnar Forshufvud og nam kór- og hljómsveitarstjórn hjá Jan Yngwe. Þá stundaði hann framhaldsnám í kórstjórn hjá prófessor Stefan Parkman við Háskólann í Uppsölum. Hann tók við starfi organista Áskirkju í september 2007 og stjórnar kór kirkjunnar. Áður var hann organisti Breiðholtskirkju, Odda á Rangárvöllum og Nynäshamnkirkju í Svíþjóð. Einnig hefur hann samið nokkur tónverk.
Magnús tók við stjórn Söngsveitarinnar Fílharmóníu í janúar 2006 og sönghópsins Hljómeykis í ágúst 2006. Meðal stærri verka sem Magnús hefur stjórnað eru Vesper solennes de Confessore og Requiem eftir Mozart, Stabat Mater eftir Haydn, Dixit Dominus eftir Handel, Messa í g-moll eftir Bach, Messa í As-dúr eftir Schubert, Carmina burana eftir Carl Orff, Náttsöngvar eftir Rakhmanínov, Óttusöngvar að vori eftir Jón Nordal og Þýsk sálumessa eftir Brahms. Síðastnefnda verkið flutti Magnús með Söngsveitinni Fílharmóníu og Lutoslawski Fílharmóníuhljómsveitinni í Wroclaw í Póllandi við mjög góðar undirtektir.
Í maí 2008 tók Hljómeyki, undir stjórn Magnúsar, þátt í hinni virtu kórakeppni Florilège Vocal de Tours og varð hlutskarpast í flokki kammerkóra ásamt kammerkórnum Khreschatyk frá Úkraínu. Í umsögnum dómnefndar var Magnús Ragnarsson álitinn einn af bestu kórstjórum keppninnar.

 

Stjórn Kórs Áskirkju skipa:

Pétur Húni Björnsson formaður

Anna Hafberg ritari

Elma Atladóttir, gjaldkeri

Geisladiskar Kórs Áskirkju

Fyrir jólin 2004 kom út geisladiskurinn Það er óskaland íslenskt, þar sem Kór Áskirkju syngur 24 ættjarðarperlur undir stjórn Kára Þormar organista.

Geisladiskurinn var tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna sem "plata ársins" og hefur vakið verðskuldaða athygli og einróma lof tónlistargagnrýnenda.

Með geisladiskinum fylgir vandaður og greinagóður 64 síðna bæklingur þar sem tónskáldum og ljóðskáldum eru gerð skil einnig á ensku, þýsku og frönsku ásamt ljóðaþýðingum á sömu málum.

Eftirtalin lög eru á diskinum:

Íslandsvísur, Sumarkveðja, Minni Ingólfs, Dalvísa, Yfir voru ættarlandi, Í Hlíðarendakoti, Ísland Ísland! Eg vil syngja, Ó! fögur er vor fósturjörð, Vísur Vatnsenda-Rósu, Draumur hjarðsveinsins, Sveitin mín, Erla, Blítt er undir björkunum, Abba Labba lá, Íslendingaljóð, Íslands minni, Sumri hallar, Smávinir fagrir, Nú sefur jörðin, Bæn, Hver á sér fegra föðurland, Barnagælur, Úr Íslendingaræðu 1904 og Brátt mun birtan dofna.

Í tilefni af 25 ára vígsluafmæli Áskirkju, þriðja sunnudag í aðventu árið 2008 kom síðan út geisladiskurinn Það aldin úr er sprungið, þar syngur Kór Áskirkju 15 íslensk og erlend jólalög undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar organista og kórstjóra.

Á þessum diski er að finna eftirtalin lög:

Það aldin út er sprungið (í fjórum útsetningum), Hátíð fer að höndum ein, María Drottins Liljan, Ave Maria, Maríukvæði, Maria Durch ein' Dornwald Ging, Spádómur Jesaja, Hinfegursta rósin er fundin, Nóttin var sú ágæt ein, Hátíð ríkir höllum í, Il est né, le divin enfant, Caroling,caroling, Toner julenatt.

Á Tónlist.is má finna lögin og sækja sér þau til hlustunar.

Orgel Áskirkju:

Fyrsta orgelharmonium kirkjunnar (Lindholm) var minningargjöf um Þorbjörn Áskelsson, útgerðarmann frá Grenivík, f. 6.júlí 1904, d. 14. apríl 1963. Gefendur voru hjónin Guðríður Ingibjörg Einarsdóttir og Þórhallur Þorláksson. Var það hljóðfæri notað frá því kirkjubyggingin hófst. Við vígslu Áskirkju þriðja sunnudag í aðventu árið 1983 var orgelpositiv Ingólfs Guðbrandssonar fengið að láni.

Árið 1985 var keypt 4½ radda orgelpositiv, án fótspils frá Reinhart Tzsehöekel í Þýskalandi. Þáverandi nemandi Reinhards, Björgvin Tómasson smíðaði orgelið sem notað var þar til núverandi orgel var keypt.

Hinn 11. nóvember 1991 fór sendinefnd sem skipuð var þeim Kristjáni Sigtryggssyni,organista og kórstjóra Áskirkju, Arnmundi Jónassyni, gjaldkera sóknarnefndar og Herði Áskelssyni organista Hallgrímskirkju til Bagsværd í Danmörku til að skoða 11 radda orgel sem þar var í boði. Það var samróma álit þeirra að umrætt hljóðfæri hentaði ekki Áskirkju. Hinsvegar þótti þeim ástæða til að koma við á orgelverkstæði P. Bruhn og Søn í Årslev, Rødekro og ræða við eigendur og líta á orgel. Það verkstæði hafði árið 1986 eða 1987 gert tilboð í 17 eða 19 radda orgel fyrir Áskirkju. Niðurstaða heimsóknarinnar var sú að eftir heimkomu þremenninganna var ákveðið að hafa formlegt samband við umrætt verkstæði og óska eftir tilboði í 11 til 12 radda orgel með þeirri raddskipan sem Hörður Áskelsson hafði lagt til. Raddskipan átti þó eftir að breytast á framleiðslutímanum.

Uppsett hefur hljóðfærið 18. raddir sem skiptast í tvö hljómborð og fótspil. Nótnaborðið er handvirkt (mekaniskt), en raddstýringar eru rafstýrðar (elektroniskar) með þremur stillanlegum raddbreytum (combinationum). Orgelið var vígt af Jónasi Gíslasyni, vígslubiskup á 10 ára vígsluafmæli Áskirkju, þriðja sunnudag í aðventu, árið 1993.

Heimild: Kristján Sigtryggsson, organisti og söngstjóri.

 

 

| Senda kirkjuverði skeyti | ©2005 Áskirkja