Kvenfélag Ásprestakalls
Kvenfélagið var stofnað 24. febrúar 1964 og voru stofnfélagar 99 talsins. Fram til ársins 1968 voru félgsfundir haldnir í safnaðarheimili Langholtssóknar. Meðal þess sem félagið tók sér fyrir hendur fyrstu árin var fótsnyrting fyrir aldraða í Holtsapóteki, jólaskemmtanir fyrir börn í Laugarásbíói, að útbúa og dreifa jólagjöfum fyrir einstæðinga á Hrafnistu og Kleppsspítala. Einnig stóð félagið fyrir fjáröflun með kaffisölum, bösurum, bingóum, blómasölu, o.fl. Með aðstoð Bræðrafélags Ásprestakalls var húseignin á Hólsvegi 17 keypt árið 1968 og fékk það nafnið Ásheimilið og þar átti kvenfélagið sitt blómaskeið.Þar var starfað að fótsnyrtingu, basarundirbúningi og þar voru félagsfundir haldnir. Einnig var þar opið hús fyrir aldraða og einnig voru þar haldin ýmis námskeið. Á þessum árum var keyptur sá borðbúnaður sem við búum að enn í dag, einnig fermingarkyrtlar og fleira. Árið 1974 var Ásheimilið selt og andvirði þess lagt inn í kirkjubygginguna. Fyrsti formaður kvenfélagsins var Guðrún S. Jónsdóttir, prestfrú og stýrði hún félaginu í 10 ár. Þá tók við formennsku Krístín Hinriksdóttir og leiddi hún félagið þar til það var lagt niður og breytt í Safnaðarfélag Ásprestakalls.
