ÁSKIRKJA

Forsíða

 

...Fréttir

...frá sóknarnefnd


Vefur Þjóðkirkjunnar

Áskirkja í Reykjavík

Hjartanlega velkomin á vef Áskirkju

 

 

 

 

 

Sóknarprestur Ásprestakalls er: Sr. Sigurður Jónsson.

Viðtalstími sóknarprests: Eftir samkomulagi.

Símar sóknarprests: Vinnusími 581-4035, farsími 864-5135.

 

SÉRSTAKAR TILKYNNINGAR:

Aðalfundur Safnaðarfélags Ásprestakalls verður haldinn miðvikudaginn 29. febrúar kl. 20:00 í Neðri safnaðarsal.

Dagskrá:

Venjuleg aðalfundarstörf

Kosningar

Önnur mál

Kaffiveitingar

Félagsmenn og velunnarar félagsins eru hvattir til að mæta.

Stjórnin

 

DAGSKRÁ VIKUNNAR Í ÁSKIRKJU:

Miðvikudagur 8. febrúar:

Kl. 15:30 Fermingarfræðsla.

Kl 17:00 Sóknarnefndarfundur.

Kl. 18:00 Höndin - sjálfsstyrkingarhópur í neðra safnaðarheimili.

Fimmtudagur 9. febrúar:

Kl. 11:00 Helgistund á Skjóli, 5. hæð, sr. Sigurður Jónsson sóknarprestur.

Kl 12:00 Kyrrðar- og bænastund í kirkjuskipi.

OPIÐ HÚS Í NEÐRA SAFNAÐARHEIMILI:

Kl. 12:30 Léttur hádegisverður, verð kr. 500.

Kl. 13:15 Spil og spjall.

Kl 14:15 Söngstund með organista.

Kl. 15:00 Síðdegiskaffi.

Kl. 16:00 Krakkallúbbur 10 til 12 ára barna.

Sunnudagur 12. febrúar:

Kl. 11:00 Messa og sunnudagaskóli Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Ásdísi Pétursdóttur Blöndal djákna. Organisti Magnús Ragnarsson. Börnin taka þátt í upphafi messunnar, en fara síðan niður í safnaðarheimili með Ásdísi djákna sem leiðir samveru sunnudagaskólabarnanna.

Þriðjudagur 14. febrúar:

Kl. 15:00 Útför Þórðar Guðnasonar, prestur sr. Sigurður Jónsson.

Kl. 16:00 Erfidrykkja í safnaðarheimili I.

Kl. 20:00 Félagsvist í neðra safnaðarheimili.

Miðvikudagur 15. febrúar:

Kl. 15:30 Fermingarfræðsla.

Kl. 18:00 Höndin - sjálfsstyrkingarhópur í neðra safnaðarheimili.

Fimmtudagur 16. febrúar:

Kl. 11:00 Helgistund á Skjóli, á 4-hæð.

Kl. 15:00 Útför Ásu Guðmundsdóttur, prestur sr. Sigfinnur Þorleifsson.

Kl. 16:00 Erfidrykkja í safnaðarheimili I.

Kl. 16:00 Krakkaklúbbur 10 til 12 ára barna.

Áskirkja

Áskirkja stendur á opnu svæði milli Vesturbrúnar og Laugarásvegar og sést hún víða að. Aðkoma að kirkjunni er frá Vesturbrún. Um það bil 50 bílastæði eru á grassteinum ofanvert við Vesturbrún og einnig eru um 20 bílastæði þegar ekið er niður með suðurhlið kirkjunnar. Á kirkjutorginu við fordyri kirkjunnar eru 5 bílastæði, ætluð starfsmönnum og fötluðum.

Áskirkja tekur 263 í sæti í kirkjuskipi og 30 sæti eru hægra megin á kórlofti. Einnig er unnt að opna skilrúm milli safnaðarheimilis og kirkjuskips.

Safnaðarheimilin í Áskirkju

Tvö safnaðarheimili með eldhúsum tilheyra kirkjunni og tekur það stærra fulldekkað um 160 manns í sæti.

Hitt safnaðarheimilið er í kjallara / jarðhæð undir kirkjuskipi og tekur það fulldekkað 80-90 manns.

Umrædd safnaðarheimili eru leigð út til erfisdrykkja, brúðkaupa, skírnar- fermingar- og afmælisveisla samkvæmt sérstökum reglum þar um. Nánari upplýsingar um útleigu gefur kirkjuvörður eða húsmóðir safnaðarheimila.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hátíðarmatur á jólahátíð Opna hússins

 

"Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yðar himneskur fyrirgefa yður. En ef þér fyrirgefið ekki öðrum, mun faðir yðar ekki heldur fyrirgefa misgjörðir yðar."
Matt. 6.14-15

 

 

 

Senda kirkjuverði skeyti | Áskirkja | Vesturbrún - 104 Reykjavík | sími: 581 - 4035 og 588 - 8870, fax: 581 - 4060