ÁSKIRKJA

Fermingar og fermingarfræðsla

Fræðslu- og fermingarreiturinn

Hér að neðan er að finna upplýsingar er varða fermingar og fermingarfræðslu. Unglingar og foreldrar þeirra eru hvött til að nýta sér þær upplýsingar sem hér er að finna.

 

 

Fermingin

Vertu trú(r) allt til dauða, og ég mun gefa þér kórónu lífsins. Opb.2.10c.

Ferming þýðir staðfesting. Í fermingunni staðfestir barnið skuldbindingu foreldra og guðfeðgina í skírnarathöfninni. Það fer með trúarjátninguna, vinnur fermingarheit og þiggur fyrirbæn og blessun. Fermt er við messu. Til þess að öðlast rétt til að mega fermast stundar fermingarbarnið sérstakt nám í kristnum fræðum hjá presti sínum eða fermingarfræðara, sem kallast fermingarfræðsla. Heimild er fyrir því að barn megi ganga til altaris með foreldrum sínum frá unga aldri, en meginreglan er þó sú að við ferminguna eða á meðan fermingarfræðslan stendur yfir, neyti barn í fyrsta sinn kvöldmáltíðarsakramentisins. (Sjá nánar kaflann um messuna.)

,,Berstu trúarinnar góðu baráttu, höndla þú eilífa lífið, sem þú varst kallaður til og þú játaðist með góðu játningunni í viðurvist margra votta I.Tm 6.12

 

 

Innritun fermingarbarna sem fermast eiga í Áskirkju vorið 2012

Kæru fermingarbörn vorsins 2012 í Ássókn og foreldrar / forráðamenn!

Fermingardagar í Áskirkju næsta vor verða sem hér segir:
                    Pálmasunnudag, 1. apríl 2012 kl. 14
                    Annan páskadag, 9. apríl 2012 kl. 11
                    Fyrsta sunnudag eftir páska, 15. apríl 2012 kl. 14
                    Hvítasunnudag, 27. maí 2012 kl. 11

Skráning í fermingarfræðslu í Áskirkju næsta vetur fer fram í kirkjunni þriðjudaginn 31. maí og miðvikudaginn 1. júní n.k. kl. 16-18:30 báða dagana.

Þar verða veittar nánari upplýsingar um tilhögun fermingarstarfsins næsta vetur.

Þau börn sem hafa hug á að fermast í Áskirkju næsta vor, eru vinsamlegast beðin að koma hingað í kirkjuna annan hvorn þessara daga til að skrá sig í fermingarfræðsluna, ásamt a.m.k. öðru foreldra sinna.

Henti þessi tími ekki, bið ég ykkur vinsamlegast að hafa samband við mig í síma 864 5135 eða með tölvupósti á netfangið soknarprestur@askirkja.is. Einnig er unnt að koma boðum til kirkjuvarðar í síma 581 4035.

Ég hlakka til að sjá ykkur og heyra.

Með kærri kveðju,

Sigurður Jónsson
sóknarprestur

 

 

Biblíuafhending

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sunnudaginn 10. október færði Safnaðarfélag Ásprestakalls þeim fermingarbörnum sem fermast eiga vorið 2011 hina nýju útgáfu af Biblíunni að gjöf. Afhendingin fór fram í kaffisamsæti í safnaðarheimili kirkjunnar að aflokinni messu sem fermingarbörnin tóku virkan þátt í. Jafnframt sáu börnin um bakstur á því meðlæti sem fram var borið. Ekki leikur vafi á að gjöf þessi mun nýtast börnunum við fermingarundirbúninginn og sem traustur förunautur inn í framtíðina.

 

Biblíugjöf

 

 

 

| Senda kirkjuverði skeyti | ©2005 Áskirkja