Hjartanlega velkomin á vef Áskirkju
Sóknarprestur Ásprestakalls er: Sr. Sigurður Jónsson
Viðtalstími sóknarprests: Þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 17:00 til 18:30 og á miðvikudögum og föstudögum frá kl. 10:00 til 12:00, annars eftir samkomulagi.
Vertu með í sókninni!
Þetta slagorð mun hljóma á næstunni sem hvatning frá kirkjunum í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra. Því er ætlað að minna sóknarbörnin á hið fjölbreytta starf sem fram fer í kirkjum prófastadæmisins. Á þessari heimasíðu er að finna þau tilboð sem hægt er að nýta sér með heimsókn í Áskirkju.
Hvað er að gerast í Áskirkju:
Í dag þriðjudag 2. október er Opið hús í Áskirkju:
- Kl. 10:00 til 12:00 Opið hús
- Kl. 12:00 til 12:20 Bænastund í umsjá djákna.
- Kl. 12:20 til 13:00 Léttur hádegisverður.
- Kl. 13:00 til 14:00 Tekið í spil.
Áskirkja:
Áskirkja stendur á opnu svæði milli Vesturbrúnar og Laugarásvegar og sést hún víða að. Aðkoma að kirkjunni er frá Vesturbrún. Um það bil 50 bílastæði eru á grassteinum ofanvert við Vesturbrún og einnig eru um 20 bílastæði þegar ekið er niður með suðurhlið kirkjunnar. Á kirkjutorginu við fordyri kirkjunnar eru 5 bílastæði, ætluð starfsmönnum og fötluðum.
Áskirkja tekur 263 í sæti í kirkjuskipi og 30 sæti eru hægra megin á kórlofti. Tvö safnaðarheimili tilheyra kirkjunni og tekur það stærra fulldekkað um 160 manns í sæti. Hitt safnaðarheimilið er í kjallara undir kirkjuskipi og tekur það fulldekkað 80-90 manns. Umrædd safnaðarheimili eru leigð út til erfisdrykkja, brúðkaupa, skírnar- og afmælisveisla samkvæmt sérstökum reglum þar um. Nánari upplýsingar um útleigu gefur kirkjuvörður.

