Bæna- og kyrrðarstund í kirkju og
Opið hús í safnaðarheimili II,
annan hvern fimmtudag.
Dagskrá vorannar 2012.
Kl. 12:00 til 12:30 Kyrrðarstund í kirkjuskipi.
Kl. 12:30 til 13:15 Léttur hádegisverður verð kr. 500
Kl. 13:15 til 14:00 Spjall og spil eða gestur.
Kl. 14:15 til 15:00 Söngstund með organista.
Kl. 15:00 til 15:30 Síðdegiskaffi.
Dagsetning |
Dagskrá kl. 13.00 -14.00 |
12.jan. |
Spjall og spil |
26.jan. |
Þorrahátíð |
09.feb. |
Spil og spjall |
23.feb. |
Gestur:Valgerður Gíslad |
08.mars |
Spjall og spil |
22.mars |
Gestur: Sr. Jakob Hjálmars |
05.apríl |
Frí - Skírdagur |
12.apríl |
Spjall og spil |
19.apríl |
Frí -Sumardagurinn fyrsti |
26.apríl |
Vorhátíð opna hússins |


Bænatund með sóknarpresti.

Opið hús - föndur.

Léttur hádegiverður.

Samtal kynslóðanna.

Söngstund með
Magnúsi Ragnarssyni, organista
Heimsóknarþjónusta:
Djákni Áskirkju leiðir heimsóknarþjónustu Áskirkju og hefur á að skipa hópi sjálfboðaliða sem annast heimsóknir til sóknarbarna.
Hver getur fengið heimsókn?
Heimsóknarþjónusta Áskirkju leitast við að koma á heimsóknum til þeirra sem gjarnan vilja kynnast fólki úr nágrenninu, en sem sjálfir vegna veikinda, fötlunar eða af öðrum ástæðum eiga erfitt með að komast út á meðal fólks.
Hvað getur heimsóknargesturinn gert?
Gesturinn hefur tíma til þess að spjalla, lesa upphátt eða hvað eina sem þið eruð sammála að gera saman. Persónuleg tengsl og vinátta myndast með tímanum sem styrkir og gleður báða aðila.
Hvernig eru heimsóknir ákveðnar?
Umsjónaraðili heimsóknarþjónustu Áskirkju finnur heimsóknargesti. Sá sem er heimsóttur og gesturinn koma sér saman um hvenær og hvernig heimsóknum skuli háttað. Báðir aðilar geta breytt samkomulaginu ef það kemur í ljós að þeir eiga ekki skap saman. Samband er þá haft við umsjónaraðilann sem kemur viðkomandi í samband við annan heimsóknargest.
Allir þátttakendur eru bundnir trúnaði.
Þau sem hafa áhuga fyrir að tengjast heimsóknarþjónustu Áskirkju, sem sjálfboðaliðar eða sem þiggjendur þeirrar þjónustu er bent á að hafa samband við Ásdísi djákna í síma 588-8870 eða 844-0874
Vel mælt, tilvitnanir til íhugunar.
Sigurbjörn Einarsson, biskup
tók saman
Ef allir hjálpuðust að yrði öllum hjálpað.
Ef hver einn gerði hreint fyrir sínum dyrum yrðu allar götur hreinar.
Ef allir heilbrigðir hjálpuðu hinum sjúku, fengju allir sjúkir hjálp.
Ef allir elskuðu náunga sinn væru allir elskaðir.
Höfundar ókunnir



